Gold/is: Difference between revisions
(Updating to match new version of source page) |
(Created page with "Elizabeth Clare Prophet, 13. júlí 1986.") |
||
| (8 intermediate revisions by the same user not shown) | |||
| Line 33: | Line 33: | ||
</blockquote> | </blockquote> | ||
< | <span id="Investing_in_gold"></span> | ||
== | == Fjárfesting í gulli == | ||
Aðrir uppstignir meistarar hafa einnig mælt með því að chela-nemar eigi gull. | |||
Saint Germain, 21. apríl, 1973: | |||
Saint Germain, | |||
Hugsið um þetta stundarkorn. Það tekur aðeins fjórtán klukkustundir að ná yfirráðum yfir hvaða þjóð sem er á jörðinni! Verða bankarnir opnir? Munuð þið hafa tíma til að innleysa ávísanir ykkar og skuldabréf og umbreyta fjármunum ykkar? Og þá spyr ég: Mun pappírinn, sem peningar ykkar eru prentaðir á, vera meira virði en pappírinn sjálfur? Ég held ekki. Ég hef því áhyggjur bæði af buddu ykkar og ykkur sjálfum. | |||
Hver er verðmætastaðallinn í áttundarvídd hins uppstigna meistara? Það er gullið, fljótandi ljós úr hjarta sólarinnar. Og þess vegna segi ég: skiptið pappír ykkar út fyrir mynt himnaríkis — sjálfu gullinu — meðan enn er tími til, því gull mun aldrei missa gildi sitt, hjartans vinir; og silfur er fullnægjandi staðgengill þar sem ekki er unnt að afla gulls.<ref>Saint Germain, 21. apríl 1973.</ref> | |||
Sadkíel erkiengill, 1. júlí 1984: | |||
<blockquote> | <blockquote> | ||
| Line 64: | Line 51: | ||
</blockquote> | </blockquote> | ||
Árið 1973 mælti Saint Germain með því að fjárfesta í gulli, en hann sagði aldrei að um skammtímafjárfestingu væri að ræða. Þetta var fjárfesting í verðmæti sem menn ættu að vera reiðubúnir að varðveita til langs tíma. Ein ástæðan var að vera viðbúinn hvers kyns efnahagslegum umróti eða ófyrirséðum aðstæðum þar sem skynsamlegra væri að eiga gull fremur en pappírspeninga. | |||
Þið ættuð aldrei að kaupa gull í því augnamiði að selja það næsta ár þegar þið þurfið á peningunum að halda. Gull er meiri háttar langtímafjárfesting. Ef þið hafið því margvísleg viðfangsefni eða skuldbindingar sem krefjast fjármuna, þá eigið þið að dreifa fjárfestingum ykkar. Þið getið til dæmis lagt reglulega tíu prósent af eigum ykkar í gull, svo að þið eigið ávallt eitthvað aukreitis ef upp kemur algjört neyðarástand. En leggið ekki öll eggin í sömu körfuna. | |||
Sumir hafa haldið að Saint Germain hafi haft rangt fyrir sér vegna þess að þeir fjárfestu í gulli, gullverð lækkaði, og síðan urðu þeir að selja gullið sitt af því þeir voru að verða uppiskroppa með peninga. En það er einmitt kjarninn í málinu varðandi bæði gull og silfur. Þið verðið að vera reiðubúin að leggja það til hliðar og hugsa um það í samhengi við heilt æviskeið, ekki næsta ár. Það er lykillinn að gulli. Það er öryggisventill fyrir ákveðið hlutfall tekna ykkar. Þið leggið ekki í gull það fé sem þið þurfið á að halda á morgun, í næstu viku eða á næsta ári til að byggja húsið ykkar. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir hvað gull er: fjárfesting sem þið þurfið ekki núna, langtímavarðveisla verðmæta. | |||
<span id="The_spiritual_power_of_gold"></span> | <span id="The_spiritual_power_of_gold"></span> | ||
| Line 117: | Line 97: | ||
The God of Gold with God [[Special:MyLanguage/Tabor|Tabor]], {{POWref-is|23|23}} og {{POWref-is|23|24}}, 1. og 15. desember 2010. | The God of Gold with God [[Special:MyLanguage/Tabor|Tabor]], {{POWref-is|23|23}} og {{POWref-is|23|24}}, 1. og 15. desember 2010. | ||
Elizabeth Clare Prophet, 13. júlí 1986. | |||
Elizabeth Clare Prophet, | |||
<references /> | <references /> | ||
Latest revision as of 12:01, 25 February 2026


Gull er útfelling sólarljóss; leiðarsteinn Alfa og Ómega; áminning til hvers barns Guðs um stóra hásætissalinn sem er hvítur og gylltur í Meginsólinni miklu. Það er úr þessum sal sem ljóssálir sögðu skilið við áttundarsvið andans, sem stigu niður á efnissviðið.
Guð gullsins útskýrir merkingu og mikilvægi gulls:
Hugtakið gullöld varð ekkt til af engu. Gullöld merkir tímabil sem byggist á gullfætinum – gullfæti Krists-vitundarinnar, gullnu reglunnar, gulls sem er útfelling sólarljóss fyrir jafnvægi hugans og tilfinninganna og flæði lífsins jafnvel í líkamsmusterinu.
Gull, ástvinir, er nauðsynlegt fyrir stöðugleika vitundarinnar sem og fyrir stöðugleika hagkerfis þjóðanna. Sé ákveðinn hluti af gulli ekki til staðar, jafnvel í musteri líkamans, helst jafnvægi frumefnanna ekki.[1] Þegar fólkið hefur ekki lengur gull í fórum sínum né klæðist gulli á sér stað miklu meiri andleg og geðræn truflun en ella.
Gull er leiðarsteinn Alfa og Ómega. Það er árétting fyrir hvert barn Guðs, á sálarstigi, um hinn mikla náðarstól, um stóra hásætissalinn sem er hvítur og gylltur í Meginsólinni miklu. Það er úr þessum sal sem ljóssálir sögðu skilið við áttundarsvið andans, sem stigu niður á efnissviðið.
Það var verkefni mitt frá Alfa og Ómega fyrir ævalöngu að koma á fót gullbeinum á efnissviðinu meðal vetrarbrautanna og kenna þar með náttúruöndunum (undir helgiveldunum fjórum og í gegnum elóhím) að jarðtengja jafnvægi kraftanna á fjórum sviðum efnisins í gegnum segulmagnaða eiginleika þessarar útfellingar sólarljóssins. Þannig lærðu náttúruandarnir að fella út gull. Og þannig vex gull í jörðinni, æðar þenjast út; og þetta jafnvægi orkunnar samsvarar fyrst og fremst beint formgerð Krists-vitundarinnar um þróun jarðarinnar eða heimskerfa og síðan þess sem hefur verið lýst í gegnum þrígreinda logann.
Gull í umferð táknar árangur á ytra sviðinu. Gull sem enn er ófundið táknar þann hluta af vaxtarmegni Krists-hugans sem á eftir að koma fram. Þið getið ekki sýnt ljós og vitund Krists án samsvarandi birtingar gulls í heimi ykkar ...
Einka gullfótur
Nú, ástvinir, mæli ég með því við ykkur öll að þið komist aftur á einka hagkerfi ykkar á gullfætinum, að þið takið frá hálft til eitt prósent af mánaðartekjum ykkar og færið það yfir í gull. Það gæti þurft sparnað í nokkra mánuði eða lengur, en það er nauðsynlegt að það sé stöðugur flutningur á að minnsta kosti einu prósenti af orku ykkar sem aðflutningi í gull sem mót, sem skurðpunkt. Og það væri gott að eitthvað af þessu væri borið á líkamanum og afgangurinn geymdur á vel vörðum stað.
Líkamsmusterin þín verða að aðlagast tíðnisviði gulls. Börnin þín verða að aðlagast tiðnisviði þess. Og þess vegna fer vel á því að þau beri nisti með undraverkaorðu af hinni ástfólgnu Maríu guðsmóður sem beinir ekki aðeins gullsvitund minni heldur einnig gullsvitund hinnar guðdómlegu móður með vernd hennar og í rafrænni nærveru meyjarmóðurinnar en gullsvitund hennar gat tekið á móti hinu guðdómlega sveinbarni. Og í gegnum þetta gull, sjáið þið, jarðtengjum við hinn flekklausa getnað alheimsmeyjunnar þar sem börn ykkar og þið sjálf getið innra með tekið á móti í hjartaloga ykkar sannri fæðingu hins guðdómlega sveinbarns, Krists-vitundarinnar á þessari öld.
Ástvinir, dálæti á peningum er rót alls ills. Og þess vegna er óhæði við mynt ríkisins algjör nauðsyn. Þið verðið að líta á fjármuni sem verkfæri og sem uppskrift að gullgerðarlist. Þið verðið að sjá, ástvinir, að þessi orka – þegar hún flæðir, þegar hún berst á milli handa, þegar hún er hluti verslunarhreyfinguar – þá stjórnar hún viðskiptunum eðlislægt innra með sér. Er þetta ekki dásamleg uppgötvun, að átta sig á því að alheimslögmálið um framboð og eftirspurn virkar í raun og veru í hagkerfum þjóðanna með frjálsu flæði sjálfs gulls? Getið þið gert ykkur í hugarlund hvernig það væri ef mannkynið þekkti þessa úrlausn og gæti tekið við henni hindurvitnalaust?
Gull er í raun töfragripur Meginsólarinnar miklu. Og þess vegna, þegar þið gefið og þiggið gull, getið þið ekki misnotað gullið græðgislega vegna þess að gull veitir orkutíðni græðginnar viðnám, en þegar þið takið við seðlum og kopar- og nikkelpeningum þá komist þið að því að jafnvel silfur getur dregið til sín orkutíðni græðginnar. En ekki gull, elskurnar. Það hrindir því frá sér samstundis og heldur því hreinleika gyðju hreinleikans sem beitir sér fyrir, sem kemur frá Alfa og Ómega. Og þess vegna hækkar gull vitundina í spíral upp á við og gull verður því tæki til sálarfrelsunar plánetu og fólks.
Fjárfesting í gulli
Aðrir uppstignir meistarar hafa einnig mælt með því að chela-nemar eigi gull.
Saint Germain, 21. apríl, 1973:
Hugsið um þetta stundarkorn. Það tekur aðeins fjórtán klukkustundir að ná yfirráðum yfir hvaða þjóð sem er á jörðinni! Verða bankarnir opnir? Munuð þið hafa tíma til að innleysa ávísanir ykkar og skuldabréf og umbreyta fjármunum ykkar? Og þá spyr ég: Mun pappírinn, sem peningar ykkar eru prentaðir á, vera meira virði en pappírinn sjálfur? Ég held ekki. Ég hef því áhyggjur bæði af buddu ykkar og ykkur sjálfum.
Hver er verðmætastaðallinn í áttundarvídd hins uppstigna meistara? Það er gullið, fljótandi ljós úr hjarta sólarinnar. Og þess vegna segi ég: skiptið pappír ykkar út fyrir mynt himnaríkis — sjálfu gullinu — meðan enn er tími til, því gull mun aldrei missa gildi sitt, hjartans vinir; og silfur er fullnægjandi staðgengill þar sem ekki er unnt að afla gulls.[2]
Sadkíel erkiengill, 1. júlí 1984:
Elsku hjartans ljósin mín, fyrir meira en áratug mælti Saint Germain með gulli og gullfætinum sem öruggri fjárfestingarleið. Ég hvorki segi að svo sé á þessari stundu né segi ég að svo sé ekki. En ég mæli með að þið kannið það sem liggur fyrir og takið viturlegar ákvarðanir og leggið ekki fjármuni ykkar of langt utan eigin stjórnunar. Því þegar fjármunir ykkar eru langt frá ykkur, eða bundnir í fjárfestingum, eða geymdir á reikningum sem þið hafið ekki greiðan aðgang að, þá komist þið að þeirri staðreynd að þið hafið ekki stjórn á auði ykkar sem er sá veikleiki sem niðurrifsöfl plánetunnar munu grípa til að beita gegn ljósberanum. Pearls of Wisdom, 27. bindi, nr. 46A, 19. september 1984.</ref>
Árið 1973 mælti Saint Germain með því að fjárfesta í gulli, en hann sagði aldrei að um skammtímafjárfestingu væri að ræða. Þetta var fjárfesting í verðmæti sem menn ættu að vera reiðubúnir að varðveita til langs tíma. Ein ástæðan var að vera viðbúinn hvers kyns efnahagslegum umróti eða ófyrirséðum aðstæðum þar sem skynsamlegra væri að eiga gull fremur en pappírspeninga.
Þið ættuð aldrei að kaupa gull í því augnamiði að selja það næsta ár þegar þið þurfið á peningunum að halda. Gull er meiri háttar langtímafjárfesting. Ef þið hafið því margvísleg viðfangsefni eða skuldbindingar sem krefjast fjármuna, þá eigið þið að dreifa fjárfestingum ykkar. Þið getið til dæmis lagt reglulega tíu prósent af eigum ykkar í gull, svo að þið eigið ávallt eitthvað aukreitis ef upp kemur algjört neyðarástand. En leggið ekki öll eggin í sömu körfuna.
Sumir hafa haldið að Saint Germain hafi haft rangt fyrir sér vegna þess að þeir fjárfestu í gulli, gullverð lækkaði, og síðan urðu þeir að selja gullið sitt af því þeir voru að verða uppiskroppa með peninga. En það er einmitt kjarninn í málinu varðandi bæði gull og silfur. Þið verðið að vera reiðubúin að leggja það til hliðar og hugsa um það í samhengi við heilt æviskeið, ekki næsta ár. Það er lykillinn að gulli. Það er öryggisventill fyrir ákveðið hlutfall tekna ykkar. Þið leggið ekki í gull það fé sem þið þurfið á að halda á morgun, í næstu viku eða á næsta ári til að byggja húsið ykkar. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir hvað gull er: fjárfesting sem þið þurfið ekki núna, langtímavarðveisla verðmæta.
Andlegur máttur gullsins
Gabríel erkiengill talar einnig um mikilvægi gullsins:
Eins og alkemistarnir vissu — og ég á hér við þá sem voru sannir — væri mannkyninu í raun unnt að kalla sjálft frumefnið gull fram úr sjálfu andrúmsloftinu og framleiða það án nokkurs vafa, ef það þekkti hinn mikla Guðs-mátt sem býr innra með því. Þegar allt kemur til alls, blessuð, gerið þið ykkur grein fyrir því að innan jarðarinnar sjálfrar eru enn voldugar æðar af gullgrýti sem mannkynið hefur ekki enn uppgötvað?
Vitið þið, gersemar mínar, að þetta gull sem liggur í æðum jarðarinnar er í raun þétting á geislum sólarinnar sjálfrar og að það hefur varðveitt mátt sólarinnar til að upplífga jarðarlíkamann?
Vitið þið, gersemin mín, að í raun er snefill af þessu dýrmæta steinefni einnig til staðar í efnislíkama ykkar?
Skiljið þið, gersemin mín, að þétting mátts ljóssins sjálfs í örsmárri mynd birtist í gegnum efnislíkama ykkar og gerir ykkur kleift að viðhalda jafnvægisástandi?
Hvers vegna haldið þið, gersemin mín, að Bandaríki Norður-Ameríku, sem sannarlega er ástfóstur dýrlingsins Saint Germains, hafi safnað gríðarlegum gullforða eins og þeim sem nú er varðveittur í Fort Knox?
Þetta gull er til þess að viðhalda í þessari þjóð hins uppstigna meistara (Saint Germains) andlegri geislun sem getur orðið gagnleg við umbreytingu margra aðstæðna sem mannkynið er ekki meðvitað um, sem og til að draga til sín meiri gnægð til þessa lands, svo að Ameríka geti verið uppspretta mikils styrks fyrir allar þjóðir heimsins — sem hinn mikilfenglegi gefandi góðra gjafa til fjölskyldu þjóðanna, hinn mikli sameinari, hinn mikli umbreytandi og hinn mikli föðurlegi vinur allra…
Vitið þið, blessuð, að það er afar verðmætt að bera á sér hlut úr gulli, ef hann er rétt segulmagnaður þannig að hann dragi mátt sólarinnar nær persónu ykkar?
Ég segi ekki að mannkynið eigi að girnast gull. Það verður að vera laust við ágirnd. Það á að vera borið sem andlegt skraut á persónu ykkar, og síðan skal ljósið kallað fram fyrir náð Guðs, svo að hinn mikli máttur geislunar Sólarinnar handan við sólina geisli inn í gullefnið og varðveiti hleðslu Hins kosmíska Krists kærleika og hleðslu kosmískrar Krists-visku, sem hið mikilfenglega lögmál mun í raun varðveita í gullþættinum.[3]Pearls of Wisdom, 68. bindi, nr. 8, 22. febrúar, 2025.</ref>
Sjá einnig
Til frekari upplýsinga
The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember 2010.
Heimildir
The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember 2010.
Elizabeth Clare Prophet, 13. júlí 1986.