Gold/is: Difference between revisions
(Created page with "Vitið þið, gersemar mínar, að þetta gull sem liggur í æðum jarðarinnar er í raun þéttun á geislum sólarinnar sjálfrar og að það hefur varðveitt mátt sólarinnar til að lífga jarðarlíkamann?") |
(Created page with "Vitið þið, gersemin mín, að í raun er snefill af þessu dýrmæta steinefni einnig til staðar í efnislíkama ykkar?") |
||
| Line 50: | Line 50: | ||
Vitið þið, gersemar mínar, að þetta gull sem liggur í æðum jarðarinnar er í raun þéttun á geislum sólarinnar sjálfrar og að það hefur varðveitt mátt sólarinnar til að lífga jarðarlíkamann? | Vitið þið, gersemar mínar, að þetta gull sem liggur í æðum jarðarinnar er í raun þéttun á geislum sólarinnar sjálfrar og að það hefur varðveitt mátt sólarinnar til að lífga jarðarlíkamann? | ||
Vitið þið, gersemin mín, að í raun er snefill af þessu dýrmæta steinefni einnig til staðar í efnislíkama ykkar? | |||
<div lang="en" dir="ltr" class="mw-content-ltr"> | <div lang="en" dir="ltr" class="mw-content-ltr"> | ||
Revision as of 09:57, 24 February 2026


Gull er útfelling sólarljóss; leiðarsteinn Alfa og Ómega; áminning til hvers barns Guðs um stóra hásætissalinn sem er hvítur og gylltur í Meginsólinni miklu. Það er úr þessum sal sem ljóssálir sögðu skilið við áttundarsvið andans, sem stigu niður á efnissviðið.
Guð gullsins útskýrir merkingu og mikilvægi gulls:
Hugtakið gullöld varð ekkt til af engu. Gullöld merkir tímabil sem byggist á gullfætinum – gullfæti Krists-vitundarinnar, gullnu reglunnar, gulls sem er útfelling sólarljóss fyrir jafnvægi hugans og tilfinninganna og flæði lífsins jafnvel í líkamsmusterinu.
Gull, ástvinir, er nauðsynlegt fyrir stöðugleika vitundarinnar sem og fyrir stöðugleika hagkerfis þjóðanna. Sé ákveðinn hluti af gulli ekki til staðar, jafnvel í musteri líkamans, helst jafnvægi frumefnanna ekki.[1] Þegar fólkið hefur ekki lengur gull í fórum sínum né klæðist gulli á sér stað miklu meiri andleg og geðræn truflun en ella.
Gull er leiðarsteinn Alfa og Ómega. Það er árétting fyrir hvert barn Guðs, á sálarstigi, um hinn mikla náðarstól, um stóra hásætissalinn sem er hvítur og gylltur í Meginsólinni miklu. Það er úr þessum sal sem ljóssálir sögðu skilið við áttundarsvið andans, sem stigu niður á efnissviðið.
Það var verkefni mitt frá Alfa og Ómega fyrir ævalöngu að koma á fót gullbeinum á efnissviðinu meðal vetrarbrautanna og kenna þar með náttúruöndunum (undir helgiveldunum fjórum og í gegnum elóhím) að jarðtengja jafnvægi kraftanna á fjórum sviðum efnisins í gegnum segulmagnaða eiginleika þessarar útfellingar sólarljóssins. Þannig lærðu náttúruandarnir að fella út gull. Og þannig vex gull í jörðinni, æðar þenjast út; og þetta jafnvægi orkunnar samsvarar fyrst og fremst beint formgerð Krists-vitundarinnar um þróun jarðarinnar eða heimskerfa og síðan þess sem hefur verið lýst í gegnum þrígreinda logann.
Gull í umferð táknar árangur á ytra sviðinu. Gull sem enn er ófundið táknar þann hluta af vaxtarmegni Krists-hugans sem á eftir að koma fram. Þið getið ekki sýnt ljós og vitund Krists án samsvarandi birtingar gulls í heimi ykkar ...
Einka gullfótur
Nú, ástvinir, mæli ég með því við ykkur öll að þið komist aftur á einka hagkerfi ykkar á gullfætinum, að þið takið frá hálft til eitt prósent af mánaðartekjum ykkar og færið það yfir í gull. Það gæti þurft sparnað í nokkra mánuði eða lengur, en það er nauðsynlegt að það sé stöðugur flutningur á að minnsta kosti einu prósenti af orku ykkar sem aðflutningi í gull sem mót, sem skurðpunkt. Og það væri gott að eitthvað af þessu væri borið á líkamanum og afgangurinn geymdur á vel vörðum stað.
Líkamsmusterin þín verða að aðlagast tíðnisviði gulls. Börnin þín verða að aðlagast tiðnisviði þess. Og þess vegna fer vel á því að þau beri nisti með undraverkaorðu af hinni ástfólgnu Maríu guðsmóður sem beinir ekki aðeins gullsvitund minni heldur einnig gullsvitund hinnar guðdómlegu móður með vernd hennar og í rafrænni nærveru meyjarmóðurinnar en gullsvitund hennar gat tekið á móti hinu guðdómlega sveinbarni. Og í gegnum þetta gull, sjáið þið, jarðtengjum við hinn flekklausa getnað alheimsmeyjunnar þar sem börn ykkar og þið sjálf getið innra með tekið á móti í hjartaloga ykkar sannri fæðingu hins guðdómlega sveinbarns, Krists-vitundarinnar á þessari öld.
Ástvinir, dálæti á peningum er rót alls ills. Og þess vegna er óhæði við mynt ríkisins algjör nauðsyn. Þið verðið að líta á fjármuni sem verkfæri og sem uppskrift að gullgerðarlist. Þið verðið að sjá, ástvinir, að þessi orka – þegar hún flæðir, þegar hún berst á milli handa, þegar hún er hluti verslunarhreyfinguar – þá stjórnar hún viðskiptunum eðlislægt innra með sér. Er þetta ekki dásamleg uppgötvun, að átta sig á því að alheimslögmálið um framboð og eftirspurn virkar í raun og veru í hagkerfum þjóðanna með frjálsu flæði sjálfs gulls? Getið þið gert ykkur í hugarlund hvernig það væri ef mannkynið þekkti þessa úrlausn og gæti tekið við henni hindurvitnalaust?
Gull er í raun töfragripur Meginsólarinnar miklu. Og þess vegna, þegar þið gefið og þiggið gull, getið þið ekki misnotað gullið græðgislega vegna þess að gull veitir orkutíðni græðginnar viðnám, en þegar þið takið við seðlum og kopar- og nikkelpeningum þá komist þið að því að jafnvel silfur getur dregið til sín orkutíðni græðginnar. En ekki gull, elskurnar. Það hrindir því frá sér samstundis og heldur því hreinleika gyðju hreinleikans sem beitir sér fyrir, sem kemur frá Alfa og Ómega. Og þess vegna hækkar gull vitundina í spíral upp á við og gull verður því tæki til sálarfrelsunar plánetu og fólks.
Þann 1. júlí 1984 gaf Sadkíel erkiengill frekari leiðbeiningar um fjárfestingu í gulli:
Elsku hjartans ljósin mín, fyrir meira en áratug mælti Saint Germain með gulli og gullfætinum sem öruggri fjárfestingarleið. Ég hvorki segi að svo sé á þessari stundu né segi ég að svo sé ekki. En ég mæli með að þið kannið það sem liggur fyrir og takið viturlegar ákvarðanir og leggið ekki fjármuni ykkar of langt utan eigin stjórnunar. Því þegar fjármunir ykkar eru langt frá ykkur, eða bundnir í fjárfestingum, eða geymdir á reikningum sem þið hafið ekki greiðan aðgang að, þá komist þið að þeirri staðreynd að þið hafið ekki stjórn á auði ykkar sem er sá veikleiki sem niðurrifsöfl plánetunnar munu grípa til að beita gegn ljósberanum. Pearls of Wisdom, 27. bindi, nr. 46A, 19. september 1984.</ref>
Andlegur máttur gullsins
Gabríel erkiengill talar einnig um mikilvægi gullsins:
Eins og alkemistarnir vissu — og ég á hér við þá sem voru sannir — væri mannkyninu í raun unnt að kalla sjálft frumefnið gull fram úr sjálfu andrúmsloftinu og framleiða það án nokkurs vafa, ef það þekkti hinn mikla Guðs-mátt sem býr innra með því. Þegar allt kemur til alls, blessuð, gerið þið ykkur grein fyrir því að innan jarðarinnar sjálfrar eru enn voldugar æðar af gullgrýti sem mannkynið hefur ekki enn uppgötvað?
Vitið þið, gersemar mínar, að þetta gull sem liggur í æðum jarðarinnar er í raun þéttun á geislum sólarinnar sjálfrar og að það hefur varðveitt mátt sólarinnar til að lífga jarðarlíkamann?
Vitið þið, gersemin mín, að í raun er snefill af þessu dýrmæta steinefni einnig til staðar í efnislíkama ykkar?
Do you understand, precious ones, that the condensed power of light itself in minute form manifests through your physical body and enables you to keep a balanced condition?
Why do you think, precious ones, that the United States of America, which is indeed the sweetheart of Saint Germain, has stored vast treasures of gold such as are now reposing at Fort Knox?
This gold is for the purpose of holding in this ascended master nation a spiritual radiance that can be useful in the transmuting of many conditions that mankind are not aware of, as well as in bringing in greater supply to this land so that America can be the source of great strength to all nations of the world—as the great giver of good gifts to the family of nations, the great unifier, the great transmuter, and the great father-friend to all....
Do you know, blessed ones, that to retain upon your person an object of gold is most valuable if it be properly magnetized so as to draw the power of the sun close to your individual person?
I do not say that mankind should covet gold. This must be without coveting. It must be placed as a focus of spiritual adornment upon your person, and then the light called forth by God’s grace so that the great power of the radiance of the Sun behind the sun will radiate into the golden substance and retain the charge of Cosmic Christ love and the charge of Cosmic Christ wisdom, which the Great Law will actually hold in the golden element.[2]
Sjá einnig
Til frekari upplýsinga
The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember 2010.
Heimildir
The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember 2010.