Gull

From TSL Encyclopedia
Revision as of 22:53, 24 February 2026 by FuzzyBot (talk | contribs) (Updating to match new version of source page)
Gull á milli kvarsdíla, frá Idarado námunni, Telluride, Colorado
 
Part of a series of articles on
Economics



Socialism
Communism
Dialectical materialism
Money beast
Federal Reserve System
Inflation
Free-enterprise system
Investments
Gold
Gold standard
 

Gull er útfelling sólarljóss; leiðarsteinn Alfa og Ómega; áminning til hvers barns Guðs um stóra hásætissalinn sem er hvítur og gylltur í Meginsólinni miklu. Það er úr þessum sal sem ljóssálir sögðu skilið við áttundarsvið andans, sem stigu niður á efnissviðið.

Guð gullsins útskýrir merkingu og mikilvægi gulls:

Hugtakið gullöld varð ekkt til af engu. Gullöld merkir tímabil sem byggist á gullfætinum – gullfæti Krists-vitundarinnar, gullnu reglunnar, gulls sem er útfelling sólarljóss fyrir jafnvægi hugans og tilfinninganna og flæði lífsins jafnvel í líkamsmusterinu.

Gull, ástvinir, er nauðsynlegt fyrir stöðugleika vitundarinnar sem og fyrir stöðugleika hagkerfis þjóðanna. Sé ákveðinn hluti af gulli ekki til staðar, jafnvel í musteri líkamans, helst jafnvægi frumefnanna ekki.[1] Þegar fólkið hefur ekki lengur gull í fórum sínum né klæðist gulli á sér stað miklu meiri andleg og geðræn truflun en ella.

Gull er leiðarsteinn Alfa og Ómega. Það er árétting fyrir hvert barn Guðs, á sálarstigi, um hinn mikla náðarstól, um stóra hásætissalinn sem er hvítur og gylltur í Meginsólinni miklu. Það er úr þessum sal sem ljóssálir sögðu skilið við áttundarsvið andans, sem stigu niður á efnissviðið.

Það var verkefni mitt frá Alfa og Ómega fyrir ævalöngu að koma á fót gullbeinum á efnissviðinu meðal vetrarbrautanna og kenna þar með náttúruöndunum (undir helgiveldunum fjórum og í gegnum elóhím) að jarðtengja jafnvægi kraftanna á fjórum sviðum efnisins í gegnum segulmagnaða eiginleika þessarar útfellingar sólarljóssins. Þannig lærðu náttúruandarnir að fella út gull. Og þannig vex gull í jörðinni, æðar þenjast út; og þetta jafnvægi orkunnar samsvarar fyrst og fremst beint formgerð Krists-vitundarinnar um þróun jarðarinnar eða heimskerfa og síðan þess sem hefur verið lýst í gegnum þrígreinda logann.

Gull í umferð táknar árangur á ytra sviðinu. Gull sem enn er ófundið táknar þann hluta af vaxtarmegni Krists-hugans sem á eftir að koma fram. Þið getið ekki sýnt ljós og vitund Krists án samsvarandi birtingar gulls í heimi ykkar ...

Einka gullfótur

Nú, ástvinir, mæli ég með því við ykkur öll að þið komist aftur á einka hagkerfi ykkar á gullfætinum, að þið takið frá hálft til eitt prósent af mánaðartekjum ykkar og færið það yfir í gull. Það gæti þurft sparnað í nokkra mánuði eða lengur, en það er nauðsynlegt að það sé stöðugur flutningur á að minnsta kosti einu prósenti af orku ykkar sem aðflutningi í gull sem mót, sem skurðpunkt. Og það væri gott að eitthvað af þessu væri borið á líkamanum og afgangurinn geymdur á vel vörðum stað.

Líkamsmusterin þín verða að aðlagast tíðnisviði gulls. Börnin þín verða að aðlagast tiðnisviði þess. Og þess vegna fer vel á því að þau beri nisti með undraverkaorðu af hinni ástfólgnu Maríu guðsmóður sem beinir ekki aðeins gullsvitund minni heldur einnig gullsvitund hinnar guðdómlegu móður með vernd hennar og í rafrænni nærveru meyjarmóðurinnar en gullsvitund hennar gat tekið á móti hinu guðdómlega sveinbarni. Og í gegnum þetta gull, sjáið þið, jarðtengjum við hinn flekklausa getnað alheimsmeyjunnar þar sem börn ykkar og þið sjálf getið innra með tekið á móti í hjartaloga ykkar sannri fæðingu hins guðdómlega sveinbarns, Krists-vitundarinnar á þessari öld.

Ástvinir, dálæti á peningum er rót alls ills. Og þess vegna er óhæði við mynt ríkisins algjör nauðsyn. Þið verðið að líta á fjármuni sem verkfæri og sem uppskrift að gullgerðarlist. Þið verðið að sjá, ástvinir, að þessi orka – þegar hún flæðir, þegar hún berst á milli handa, þegar hún er hluti verslunarhreyfinguar – þá stjórnar hún viðskiptunum eðlislægt innra með sér. Er þetta ekki dásamleg uppgötvun, að átta sig á því að alheimslögmálið um framboð og eftirspurn virkar í raun og veru í hagkerfum þjóðanna með frjálsu flæði sjálfs gulls? Getið þið gert ykkur í hugarlund hvernig það væri ef mannkynið þekkti þessa úrlausn og gæti tekið við henni hindurvitnalaust?

Gull er í raun töfragripur Meginsólarinnar miklu. Og þess vegna, þegar þið gefið og þiggið gull, getið þið ekki misnotað gullið græðgislega vegna þess að gull veitir orkutíðni græðginnar viðnám, en þegar þið takið við seðlum og kopar- og nikkelpeningum þá komist þið að því að jafnvel silfur getur dregið til sín orkutíðni græðginnar. En ekki gull, elskurnar. Það hrindir því frá sér samstundis og heldur því hreinleika gyðju hreinleikans sem beitir sér fyrir, sem kemur frá Alfa og Ómega. Og þess vegna hækkar gull vitundina í spíral upp á við og gull verður því tæki til sálarfrelsunar plánetu og fólks.

Investing in gold

Other ascended masters have also recommended that the students own gold.

Saint Germain, April 21, 1973:

Think about it for a moment. [It only takes] fourteen hours for the takeover of any nation upon earth! Will the banks be open? Will you have time to cash in your checks and bonds and convert your funds? And then I say, will the paper upon which your money is printed be worth more than the value of the paper itself? I think not. I am concerned then for your purse as well as for your person.

What is the standard of value in the ascended master octave? It is golden liquid light from the heart of the sun. And therefore I say, exchange your paper for the coin of heaven’s realm—gold itself—while there is yet time, for gold will never lose its value, precious hearts; and silver is an adequate substitute where gold cannot be secured.[2]

Þann 1. júlí 1984 gaf Sadkíel erkiengill frekari leiðbeiningar um fjárfestingu í gulli:

Elsku hjartans ljósin mín, fyrir meira en áratug mælti Saint Germain með gulli og gullfætinum sem öruggri fjárfestingarleið. Ég hvorki segi að svo sé á þessari stundu né segi ég að svo sé ekki. En ég mæli með að þið kannið það sem liggur fyrir og takið viturlegar ákvarðanir og leggið ekki fjármuni ykkar of langt utan eigin stjórnunar. Því þegar fjármunir ykkar eru langt frá ykkur, eða bundnir í fjárfestingum, eða geymdir á reikningum sem þið hafið ekki greiðan aðgang að, þá komist þið að þeirri staðreynd að þið hafið ekki stjórn á auði ykkar sem er sá veikleiki sem niðurrifsöfl plánetunnar munu grípa til að beita gegn ljósberanum. Pearls of Wisdom, 27. bindi, nr. 46A, 19. september 1984.</ref>

In 1973, Saint Germain advocated investing in gold, but he never said it was a short-term investment. It was an investment in a commodity that you should be prepared to keep on a long-term basis. One reason was to be prepared for anything that might be an upheaval in the economy or unforeseen circumstances where it would be wise to have gold rather than paper money.

You should never buy gold with the idea that you may sell it next year when you need the money. Gold is a very long-term investment. So if you have many things to do with your money, what you need to do is diversify your investments. You may put ten percent of what you have in gold regularly, so that you always have something set aside in a situation of total emergency. But don’t put all your eggs in one basket.

Some people have thought that Saint Germain was incorrect because they invested in gold, then gold went down, and then they had to sell their gold because they were running out of money. Well, that is the whole problem with gold and silver both. You have to be prepared to lay it aside and think of it in terms of a lifetime, not in terms of next year. That is the key to gold. It is a place of safety for percentages of your income. You don’t put into gold what you’re going to need tomorrow, next week, or next year to build your house. It is important to realize what gold is: a place to store money you don’t need now, a long-term store of value.

Andlegur máttur gullsins

Gabríel erkiengill talar einnig um mikilvægi gullsins:

Eins og alkemistarnir vissu — og ég á hér við þá sem voru sannir — væri mannkyninu í raun unnt að kalla sjálft frumefnið gull fram úr sjálfu andrúmsloftinu og framleiða það án nokkurs vafa, ef það þekkti hinn mikla Guðs-mátt sem býr innra með því. Þegar allt kemur til alls, blessuð, gerið þið ykkur grein fyrir því að innan jarðarinnar sjálfrar eru enn voldugar æðar af gullgrýti sem mannkynið hefur ekki enn uppgötvað?

Vitið þið, gersemar mínar, að þetta gull sem liggur í æðum jarðarinnar er í raun þétting á geislum sólarinnar sjálfrar og að það hefur varðveitt mátt sólarinnar til að upplífga jarðarlíkamann?

Vitið þið, gersemin mín, að í raun er snefill af þessu dýrmæta steinefni einnig til staðar í efnislíkama ykkar?

Skiljið þið, gersemin mín, að þétting mátts ljóssins sjálfs í örsmárri mynd birtist í gegnum efnislíkama ykkar og gerir ykkur kleift að viðhalda jafnvægisástandi?

Hvers vegna haldið þið, gersemin mín, að Bandaríki Norður-Ameríku, sem sannarlega er ástfóstur dýrlingsins Saint Germains, hafi safnað gríðarlegum gullforða eins og þeim sem nú er varðveittur í Fort Knox?

Þetta gull er til þess að viðhalda í þessari þjóð hins uppstigna meistara (Saint Germains) andlegri geislun sem getur orðið gagnleg við umbreytingu margra aðstæðna sem mannkynið er ekki meðvitað um, sem og til að draga til sín meiri gnægð til þessa lands, svo að Ameríka geti verið uppspretta mikils styrks fyrir allar þjóðir heimsins — sem hinn mikilfenglegi gefandi góðra gjafa til fjölskyldu þjóðanna, hinn mikli sameinari, hinn mikli umbreytandi og hinn mikli föðurlegi vinur allra…

Vitið þið, blessuð, að það er afar verðmætt að bera á sér hlut úr gulli, ef hann er rétt segulmagnaður þannig að hann dragi mátt sólarinnar nær persónu ykkar?

Ég segi ekki að mannkynið eigi að girnast gull. Það verður að vera laust við ágirnd. Það á að vera borið sem andlegt skraut á persónu ykkar, og síðan skal ljósið kallað fram fyrir náð Guðs, svo að hinn mikli máttur geislunar Sólarinnar handan við sólina geisli inn í gullefnið og varðveiti hleðslu Hins kosmíska Krists kærleika og hleðslu kosmískrar Krists-visku, sem hið mikilfenglega lögmál mun í raun varðveita í gullþættinum.[3]Pearls of Wisdom, 68. bindi, nr. 8, 22. febrúar, 2025.</ref>

Sjá einnig

Guð gullsins

Gullfótur

Til frekari upplýsinga

The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember 2010.

Heimildir

The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember 2010.

Elizabeth Clare Prophet, July 13, 1986.

  1. Líkami meðalmanns inniheldur um 0,23 mm af gulli, nóg til að mynda tening sem er um 0,22 mm að stærð.
  2. Saint Germain, April 21, 1973.
  3. Archangel Gabriel, „Follow the Thread of Gold—the Christly Leadings of the Voice of God,“ 3. janúar 1965, birt í